„Hef séð hörðustu nagla gráta“
Í nýjasta þætti af Á Kaffistofunni ræðir Hjörvar Ágústsson við Pétur Halldórsson ráðunaut hjá RML um ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt er tengist starfi hans sem sýningarstjóri á kynbótasýningum síðustu áratugi.
Ein af spurningum Hjörvars var hvort að Pétur myndi eftir einhverjum eftirminnilegum atvikum frá sinni tíð á kynbótasýningum. Svar Péturs var á þessa leið.
„Ég veit ekki hvað skal segja, ég fæ alveg gæsahúð með fulla brekku á Landsmóti og ung kynbótahross dansandi um brautina. Ég held að það séu mínar stærstu stundir þegar ég fylgist með því. Ég hef séð hörðustu nagla gráta af gleði þegar allt gengur upp og ég hef séð þá gráta af illsku þegar eitthvað gengur ekki upp. Ég kynnist fólki alveg inn að beini, þetta er ölum hjartans mál og mikil pressa á öllum oft á tíðum. Mér er líka eftirminnilegt fyrsta Landsmótið sem ég var sýningarstjóri á, 2004 á Hellu, þá var einmitt sett upp sýning með hæst dæmdu kynbótahrossum í ákveðnum eiginleikum hæfileika. Bestu töltaranir settir inn á hringvöllinn og svo var þessu bara lýst eins og töltkeppni. Hrossin glönsuðu þarna á hringvellinum á sinni kynbótajárningu og mér fannst þetta mjög áhrifaríkt, svo komu vekringarnir á flugaskeiði. Okkur hefur oft langað að endurtaka þetta síðar en ekki tekist á þennan hátt.“
Það má nálgast þáttinn á Spotify og hér á vefsíðu Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Kristín tekur við formennsku í Sörla