Frostatíð, meistarar og herpesveira

  • 27. desember 2021
  • Fréttir
Annáll 2021 - Vetur

Í byrjun árs var mikil frostatíð og voru víða hrossahólf orðin vatnslaus.

Hinar ýmsu deildir hófu göngu sína og krýndu meistara í lok tímabilsins. Alls voru þær níu; Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, Meistaradeild KS í hestaíþróttum, Áhugamannadeild Equsana, Suðurlandsdeildin, Vesturlandsdeildin, Uppsveitadeildin, G-Hjálmarsson deildin, Meistaradeild Líflands og æskunnar og Meistaradeild Ungmenna.

LH kynnti nýjar gæðingafimi reglur sem samþykktar voru á Landsþingi árið áður. Haldið var prufumót í byrjun febrúar og vonast var eftir því að geta boðið upp á keppni í gæðingafimi LH oftar á árinu.

Gunnar Sturluson var endurkjörin formaður FEIF.

Alvarleg herpesveira herjaði á hross í Evrópu. Olli hann dauða fjölda hrossa og miklum veikindum, eitthvað var um að íslenski hesturinn smitaðist en tvö íslenska hross drápust af völdum veirunnar.

Eldgos hófst við Fagradalsfjall og lögðu nokkrir hestamenn leið sína þangað til að mynda fákinn sinn við eldhafið.

Vegna covid-19 voru flestir viðburðir án áhorfenda en nutu þá hestamenn góðs af Alendis TV sem stóð sig vel í að sýna frá helstu viðburðunum.

Nokkrum viðburðum var aflýst en margir sáu tækifæri í ástandinu og fóru að halda rafræn námskeið. 

Lagt var fram frumvarp á Alþingi um Hálendisþjóðgarð sem fór misvel í hestamenn. LH lagðist gegn frumvarpinu en sambandið taldið of mörgum spurningum enn ósvarað. 

WorldFengur bætti við myndbandsgagnagrunn sinn og má þar helst nefna hápunkta frá Landsmóti 2000-2008

Æskulýðsbikar FEIF fyrir æskulýðsstörf árið 2020 fór til Sviss

Frysta útgáfa Eiðfaxi International kom út í byrjun árs

Eiðfaxi vetur kom út þar sem m.a. var rætt við Sigurð V Matthíasson sem sagði okkur frá eftirminnilegum gæðingum af ferli sínum. Auður Stefánsdóttir og Hermann Arason sögðu okkur frá lífi þeirra í hestamennskunni. Sigurður Sæmundsson er maður margra hatta og sagði hann lesendum frá lífshlaupi sínu. Við kynntumst Ástundarfeðgum betur og þeirra ræktunarstarfi. Lárus Ástmar Hannesson fráfarandi formaður LH var í viðamiklu viðtali, og fleira og fleira.

 

Mest lesnu fréttir á Eiðfaxa.is veturinn 2021

  1. Í minningu Sveins Gauks Jónssonar
  2. Draupnir frá Stuðlum seldur til Þýskalands
  3. Hver er besti töltari allra tíma?
  4. Blakkur frá Þykkvabæ er „kominn á Fast“!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link