Á morgun þriðjudag – Fyrirlestur með Pálmari Ragnarssyni
Þriðjudaginn 6. febrúar klukkan 20:00 verður fyrirlestur á Sörlastöðum um Jákvæð samskipti með Pálmari Ragnarsyni
Húsið opnar klukkan 19:30 og boðið verður uppá léttar veitingar í hlé.
Aðgangseyrir 2500 kr fyrir fullorðna en frítt inn fyrir 21 árs og yngri.
Við viljum hvetja sem flesta til að mætta á þennan frábæra viðburð.
Pálmar Ragnarsson er þekktur fyrirlesari og hefur haldið yfir 800 fyrirlestra í 8 löndum. Hann er útskrifaðist með bs. gráðu í sálfræði og ms. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á samskipti á vinnustöðum. Hann skrifaði bókina „SAMSKIPTI“ þar sem hann gerði stóra rannsókn á samskiptum og spurði um 13.000 manns yfir 200 spurningar um samskipti sín. Einnig starfar hann sem körfuknattleiksþjálfari þar sem hann hefur vakið mikla athygli fyrir jákvæðar aðferðir sínar í starfi með börnum og unglingum. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra í bæjarfélögum og skólum út um allt land og er nú loks á leið til okkar.
Smá kynning frá fyrirlestrara:
Í fyrirlestri mínum „Jákvæð samskipti“ fjalla ég á skemmtilegan hátt um jákvæð samskipti og tengi þau mikið yfir á ykkar hóp. Ég tek skemmtileg dæmi sem ég tengi við áhorfendur sem fær fólk til þess að hugsa og hlæja á sama tíma. Helsti boðskapurinn er sá að við ættum hver og ein að reyna að ná því besta út úr fólkinu í kringum okkur á sama tíma og við gerum líf okkar betra og skemmtilegra. Þannig getum við myndað andrúmsloft í okkar hópum þar sem að fólki líður vel, langar að taka þátt og hópurinn þéttist og eflist.
Allir velkomnir!
Fræðslunefnd Sörla
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa