Æska Suðurlands hefst á sunnudaginn
Fyrsta mótið af þremur í Æska Suðurlands 2026 sem er samstarfsverkefni hestamannafélaga á Suðurlandi fer fram næsta sunnudag 29.mars í Rangárhöllinni á Hellu. Hin mótin eru 19.apríl í Eldhestum og svo 26.apríl á Selfossi.
„Endilega fylgist með á fésbókarsíðu Æsku Suðurlands Einnig fyrir sunnudaginn endilega fylgist með á viðburðinum. Inná viðburðinum eru einnig frekari upplýsingar um mótið og keppnisgreinar sunnudagsins,“ segir í tilkynnningu frá skipulagsnefnd.
Á sunnudaginn verður keppt í þrígangi barna, fjórgangi unglinga og ungmenna, ásamt því að keppt verður í smala í öllum flokkum. Einnig verður pollaflokkur þar sem börn yngri en 10 ára fá að prufa smalabrautina, bæði teymdir og þeir sem vilja ríða sjálfir.
Skráning er inná sportfengur og veljið Geysir sem aðildarfélag móts. Skráningar frestur er til miðnættis föstudags 27.mars.
Samanlagðir sigurvegarar (þrjár bestu greinar) í hverjum aldursflokki yfir mótaröðina verða svo krýndir í lok mótaraðarinnar.
Dagskráin á sunnudaginn 29.mars í Rangárhöllinni
kl 11:00 opnar húsið
kl 12:00 keppni í hringvallargreinum
Barnaflokkur – forkeppni og A-úrslit
Unglingaflokkur – forkeppni og A-úrslit
Ungmennaflokkur – forkeppni og A-úrslit
30 mín hlé – til að taka niður völlinn og setja þrautabrautina upp.
Pollaflokkur
Barnaflokkur – tvær umferðir og verðlaunaafhending
Unglingaflokkur – tvær umferðir og verðlaunaafhending
Ungmennaflokkur – tvær umferðir og verðlaunaafhending
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Karlatölt Kalda
Skírdagskaffi Sörla