Ágiskunarleikur Eiðfaxa – Verðlaun í boði
Nú er komið að því að giska á það hvaða knapar raða sér í efstu sæti í keppni í gæðingafimi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum sem fram fer á morgun sunnudag.
Allir geta tekið þátt með því að skrifa í kommenta-kerfið á facebook hverjir þau telja að verði sex efstu knapar og hver standi uppi sem sigurvegari.
Einungis á að giska á sex efstu knapa og í hvaða röð þeir enda.
Að þessu sinni eru verðlaunin ekki af verri endanum því sá sem flest stig hlýtur fær sent heim nýtt árstíðarrit Eiðfaxa Vetur sem er í prentun. Um er að ræða 124 blaðsíðna tímarit uppfullt af skemmtun og fróðleik.
Ráslista í gæðingafimi má nálgast hér
Reglurnar eru einfaldar.
15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara
10 stig fást fyrir að vera með par í rétttu sæti
5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH