Árshátíð Hestamannafélagsins Sleipnis næsta laugardag

  • 16. október 2023
  • Tilkynning
Miðasala er hafin í Gallerí Ózone Selfossi
Nú er komið að árshátíð Hestamannafélagsins Sleipnis og einu skemmtilegasta balli ársins „Hestamannaballinu 2023“, en það verður laugardagskvöldið 21. október, og verður þetta í 8. sinn sem árshátíðin og ballið er haldið sama kvöld, þar er fólk á öllum aldri og virkilega góð stemning í lofti… Hinir einu sönnu Papar munu leika á fyrir dansi á ballinu, Meistari Jakob verður með uppistand ofl. ofl.
Húsið opnar fyrir árshátíðar gesti kl. 19:00 með fordrykk, ballið hefst svo á slaginu kl. 23:00 og opnar húsið fyrir almenna ball gesti þá – miðaverð á ballið er 3.900 – sjáumst hress!
Miðasalan á árshátíðina verður í Gallerí Ózone Selfossi, og hefst hún Þríðjudaginn 14. Október, miðaverð á árshátíð og ball er 10.900
Kveðja Nefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link