Athyglisverðir ræktunargripir á Hólum
Álfamær frá Prestsbæ og Þórarinn Eymundsson á landssýningu kynbótahrossa árið 2020.
Vorsýning á Hólum í Hjaltadal fór fram í síðustu viku frá miðvikudegi og lauk á yfirliti í gær. Alls voru 58 hross sýnd og þar af 45 í fullnaðardómi, 24 þeirra hlutu 1.verðlaun. Dómarar voru þau Guðlaugur Antonsson, Elistabeth Trost og Óðinn Örn Jóhannsson.
Hæst dæmda hross sýningarinnar er Álfamær frá Prestsbæ sem hlaut 8,53 fyrir sköpulag, 8,67 fyrir hæfileika og 8,62 í aðaleinkunn. Álfamær er sex vetra gömul undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ. Ræktendur eru Inga & Ingar Jensen en sýnandi var Þórarinn Eymundsson. Álfamær hlaut m.a. einkunnina 9,5 fyrir skeið og er hún ein af þremur hrossum sem hlutu þá einkunn því auk hennar hlutu þeir Rosi frá Berglandi, sýndur af Guðmari Frey Magnússyni og Tangó frá Litla-Garði, sýndur af Konráði Val Sveinssyni, þá einkunn.
Kastor frá Garðshorni á Þelamörk hlaut 10,0 fyrir skeið og fjallaði Eiðfaxi um það fyrr í dag og má lesa um hann með því að smella hér.
Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar er Atli frá Efri-Fitjum sýndur af Tryggva Björnssyni sem ræktaði hestinn ásamt Grétu Brimrúnu Karlsdóttur og er eigandi hans í dag ásamt Magnúsi Andréssyni. Atli er sex vetra gamall undan Vita frá Kagaðarhóli og Hrínu frá Blönduósi. Atli hlaut 8,56 fyrir sköpulag, 8,45 fyrir hæfileika og 8,49 í aðaleinkunn.
Tryggvi sýndi einnig frábæra fjögurra vetra stóðhesta þá Drang frá Steinnesi og Tappa frá Höskuldsstöðum sem báðir hlutu 8,33 í aðaleinkunn. Drangur er undan Draupni frá Stuðlum og Ólgu frá Steinnesi en Tappi undan Kolskeggi frá Kjarnholtum og Tign frá Höskuldsstöðum. Báðir hlutu þeir hina frábæru einkunn 9,0 fyrir tölt.
Næsta kynbótasýning á norðurlandi fer fram á Akureyri í næstu viku þar sem 71 hross eru skráð til dóms.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH