Bjartar vonir ræktenda sinna
Á mörgum tamningastöðvum og ræktunarbúum eru frumtamningar hafnar eða við það að hefjast. Að mati margra hrossaræktenda er þessi árstími einhver sá mest spennandi því nú fer að koma í ljós hvernig pörun hryssna og stóðhesta tókst fyrir þremur árum en algengast er að frumtemja hross síðsumars eða að hausti þegar þau eru þriggja vetra.
Í gær var fjallað um þá þriggja vetra stóðhesta sem eru með 120 eða hærra í kynbótamati.
Blaðamaður Eiðfaxa studdist við Worldfeng til að athuga hvaða hryssur eru hæstar í kynbótamati þeirra sem fæddar eru árið 2017 og eru staðsettir hér á Íslandi. Hér má sjá allar þær hryssur sem eru með 120 eða hærra í kynbótamati raðað eftir föður.