Eiðfaxi á leið inn um lúguna

  • 9. október 2023
  • Tilkynning
Áskrifendur Eiðfaxa eiga von á næsta blaði

Á meðal efnistaka í Eiðfaxa Sumar má nefna:

Umfjöllun um Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst þar sem íslendingar sópuðu til sín gullverðlaununum.

Sextíu ár eru liðin frá stofnun Hestamannafélagsins Kóps og er ágrip af sögu félagsins að finna í Eiðfaxa Sumar.

Helgi Eggertsson í Kjarri rifjar upp eftirminnilega hross á sínum ferli en þ.á.m er áhugaverð frásögn um heiðursverðlauna  stóðhestinn Stála frá Kjarri

Viktoría Huld Hannesdóttir sló í gegn á stóðhestinum Þin frá Enni á Stóðhestaveislu Eiðfaxa síðast liðið vor en í blaðinu er að finna mjög skemmtilegt viðtal við þessa ungu og efnilegu hestastelpu.

Í blaðinu er einnig að finna fróðlega grein um kynbótamatið og erfðaframför í íslenska hrossastofninum eftir þau Þorvald Árnason og Elsu Albertsdóttur.

Gísli Guðjónsson tók viðtal við Ólaf Friðrik Gunnarsson, hrossabónda á Helgastöðum, en Ólafur er tiltölulega nýfarin að stunda hestamennsku. Hann er í mikill uppbyggingu á Helgastöðum og keypti m.a. einn af sigurvegurum síðasta Landsmóts.

Þetta ásamt ýmsu fleiru má finna í tímariti Eiðfaxa Sumar, vertu áskrifandi að Eiðfaxa og styddu við umfjöllun um íslenska hestinn og öllu því sem honum fylgir með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link