Ellefu hross hlutu 10 fyrir prúðleika á árinu
Kórall frá Hofi á Höfðaströnd er einn af þeim sem hlaut 10 fyrir prúðleika á árinu
Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Síðasti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er prúðleiki
Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.
Prúðleiki á fax og tagl
Við einkunnagjöf fyrir prúðleika er metin sídd og þykkt á ennistoppi, faxi og tagli hestsins. Almennt eru gerðar minni kröfur til hryssna en stóðhesta. Sá dómaleiðari sem á eftir kemur miðast við stóðhesta en hryssur fá almennt hálfum hærra fyrir sambærilegan prúðleika.
9,5 – 10
Afar ræktarlegur prúðleiki. Góð þykkt er á ennistoppi, faxi og tagli. Ennistoppur nái vel niður fyrir augu, fax er sítt beggja vegna og taglið nær niður á kjúkur. Jafn vöxtur er á faxi frá hnakka og niður á herðar.
Alls hlutu 41 hross á árinu einkunnina 9,5 fyrir prúðleika og ellefu hlutu 10,0.
Listi yfir þau hross sem hlutu 10 fyrir prúðleika
| Nafn | Uppruni í þgf. | Sýnandi |
| Blesi | Heysholti | Árni Björn Pálsson |
| Grettir | Ásbrú | Þorgeir Ólafsson |
| Kórall | Hofi á Höfðaströnd | Þorsteinn Björn Einarsson |
| Léttir | Þóroddsstöðum | Árni Björn Pálsson |
| Lína | Efra-Hvoli | Árni Björn Pálsson |
| Myrkvi | Äspekullen | Sigurjón Örn Björnsson |
| Sindri | Lækjamóti II | Ísólfur Líndal Þórisson |
| Sjafnar | Skipaskaga | Jón Árnason |
| Spennandi | Fitjum | Bjarni Jónasson |
| Tannálfur | Fossanmoen | Erlingur Erlingsson |
| Teningur | Víðivöllum fremri | Þórarinn Eymundsson |
Listi yfir þau hross sem hlutu 9.5 fyrir prúðleika
| Nafn | Uppruni í þgf. | Sýnandi |
| Árvakur | Neðra-Skarði | Þórður Þorgeirsson |
| Assa | Ási 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir |
| Brandur | Gröf | Flosi Ólafsson |
| Dama | Hæli | Jakob Svavar Sigurðsson |
| Demantur | Prestsbæ | Heiðrún Ósk Eymundsdóttir |
| Díva | Kvíarhóli | Viðar Ingólfsson |
| Drottning | Austurkoti | Páll Bragi Hólmarsson |
| Eldey | Prestsbæ | Þórarinn Eymundsson |
| Faldur | Fellsási | Tryggvi Björnsson |
| Forni | Flagbjarnarholti | Teitur Árnason |
| Funi | Akri | Rasmus Møller Jensen |
| Glaður | Hemlu II | Vignir Siggeirsson |
| Goliat | Musö | Eyjólfur Þorsteinsson |
| Gulltinna | Borgarnesi | Máni Hilmarsson |
| Hjartasteinn | Hrístjörn | Helga Una Björnsdóttir |
| Hrafnkatla | Kvíarhóli | Viðar Ingólfsson |
| Hrafntinna | Strandarhjáleigu | Elvar Þormarsson |
| Hrefna | Isterbergerhof | Eric Winkler |
| Ísberg | Hákoti | Eva Dyröy |
| Jaki | Horni I | Ómar Ingi Ómarsson |
| Kilja | Frötuna gård | Frida Lindström |
| Kjalar | Kili | Tryggvi Björnsson |
| Kristall | Skagaströnd | Þórarinn Eymundsson |
| Krummi | Feti | Ólafur Andri Guðmundsson |
| Lakkrís | Skadhauge | Agnar Snorri Stefansson |
| Leó | Langtved | Sigurður Óli Kristinsson |
| Merkúr | Smedjan | Vignir Jónasson |
| Óskar | Flekkudal | Agnar Snorri Stefansson |
| Safír | Hjarðartúni | Hans Þór Hilmarsson |
| Sesar | Skarstad | Steinar Clausen Kolnes |
| Skrúður | Svalbarða | Ævar Örn Guðjónsson |
| Stáli | Fitjamyri | Lucy Nold |
| Stemma | Þóroddsstöðum | Árni Björn Pálsson |
| Stormur | Djúpárbakka | Mayara Gerevini |
| Taktur | Rank | Agnar Snorri Stefansson |
| Tangó | Mönchhof | Isabelle Füchtenschnieder |
| Tónn | Álftagerði | Bjarni Jónasson |
| Topar | Vildängen | Erika Lande |
| Víga-Barði | Kolgerði | Julian Veith |
| Þokki | Húsafelli 2 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| Þróttur | Skáney | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
Hinir eiginleikarnir:
Hæfileikar
Tölt
Brokk
Skeið
Stökk
Samstarfsvilji
Fegurð í reið
Fet
Hægt tölt
Hægt stökk
Sköpulag
Höfuð
Háls / herðar og bógar
Bak og lend
Samræmi
Fótagerð
Réttleiki
Hófar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH