Háls, herðar og bógar – Fjórar hryssur hlutu 9,5
Sól frá Borg hlaut 9,5 fyrir háls sem var lýst á þennan hátt: Reistur - Hátt settur - Langur Mynd: Aðsend
Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er háls,herðar og bógar.
Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metinn er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.
Alls hlutu fjórar hryssur á árinu einkunnina 9,5 fyrir háls,herðar og bóga en ekkert hross hlaut einkunnina 10,0 í ár frekar en þau fyrri en ekkert hross hefur hlotið þá eftirsóknarverðu einkunn.
Háls, herðar og bógar
Í þessum eiginleika er lögun, reising, setning og lengd hálsins metin. Þá er einnig lagt mat á hæð og lengd herðanna sem og lengd og halla bóganna. Lögð er áhersla á að frambyggingin nýtist í reið og þar er skoðuð reising, höfuðburður og/eða bóghreyfing.
9,5 – 10
Afar vel lagaður háls sem er mjúkur, reistur og hátt settur. Yfirlína hálsins er löng og hvelfd, hálsinn er vel aðskilinn frá bógum, grynnist vel upp í kverk og samtenging höfuðs og háls skapar úrvalsgóða hnakkabeygju. Herðar eru háar og langar og bógar eru langir og vel skásettir.
Fyrir einkunnina 9,5 eða 10 fyrir háls, herðar og bóga skal sannreyna að frambyggingin nýtist hrossinu í reið.
Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir háls, herðar og bógar.
| Nafn | Uppruni | Einkunn |
| Sól | Borg | 9,5 |
| Gefn | Feti | 9,5 |
| Venus | Þingbrekku | 9,5 |
| Kúla | Laugardælum | 9,5 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH