Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Fyrstir koma fyrstir fá!

  • 7. febrúar 2023
  • Tilkynning

Eins og fram hefur komið verður keppt í slaktaumatölti næstkomandi fimmtudagskvöld í Meistaradeild Líflands í HorseDay höllinni, Ingólfshvoli. Heyrst hefur að margir af bestu tölturum landsins hafi verið að æfa sig í höllinni undanfarið og að búast megi við því að gríðarlega flott hross séu að fara mæti til leikinn.
Íslensk Verðbréf endurtaka leikinn og bjóða áhorfendum í höllina og því tilvalið að mæta tímanlega og fá sér að borða en aðstandendur HorseDay hallarinnar munu bjóða upp á glæsilegar veitingar.

-Lambalæri með sveppasósu, kartöflugratín, steiktu grænmeti og salati.
-Eldbakaðar pizzur og pizzusneiðar.
-VOR samlokur.

Þeir sem panta mat á [email protected] fá sæti merkt sér á besta stað i stúkunni. Tilvalið fyrir vinina og eða fjölskylduna.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link