Hæmir og Hylling hæst dæmd í Herning
Hæmir fra Hyldsbæk Ljósmynd/DI - avl og kåringer
Kynbótasýningu sem fram fór um helgina í Herning er nú lokið. Alls voru 39 hross sýnd í fullnaðardómi, 15 í sköpulagi og því alls 52 dómar. Dómarar voru þau Friðrik Már Sigurðsson, Silke Feuchthofen og William Flugge.
Hæst dæmda hross sýningarinnar er stóðhesturinn Hæmir fra Hyldsbæk sem er sex vetra gamall undan Grím frá Efsta-Seli og Heilladís frá Grímsstöðum. Hæmir hlaut 8,76 fyrir sköpulag og þar af 9,5 fyrir háls,herðar og bóga. 9,0 fyrir samræmi og prúðleika. Hann hlaut 8,60 fyrir hæfieika og þar af 9,0 fyrir tölt, greitt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið og fet. Ræktandi hans er Susanne Fibiger sem er eigandi ásamt Agnari Snorra Stefánssyni sem sýndi hestinn.
Hæst dæmda hryssan er Hylling fra Bakka ræktuð og er hún í eigu Margrethe og Søren Hylling en sýnandi hennar var Søren Madsen. Hún hlaut 8,34 fyrir sköpulag, 7,95 fyrir hæfileika og 8,09 í aðaleinkunn. Hylling er undan Mjölni frá Hlemmiskeiði 3 og Óvissu frá Feti.

Hylling fra Bakka Ljósmynd/DI – avl og kåringer
Af öðrum hrossum á þessari sýningu er vert að minnast á Trommara frá Skálakoti sem er sammæðra Sleipnisbikarhafanum Skýr frá Skálakoti en faðir hans er Trymbill frá Stóra-Ási. Trommari er sex vetra gamall og hlaut hann 8,41 fyrir sköpulag, 8,58 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,53. Hæst hlaut hann einkunnina 9,5 fyrir skeið. Ræktandi er Guðmundur Jón Viðarsson, eigandi er Berit Ertmann og sýnandi Agnar Snorri Stefánsson.
Eins og Eiðfaxi hefur fjallað um að þá hlaut stóðhesturinn Evert fra Slippen m.a. einkunnina 10,0 fyrir tölt í forsýningu sýndur af ræktanda sínum Jóhanni Rúnari Skúlasyni. Evert er það hross sem hæsta aðaleinkunn hefur hlotið án skeiðs í ár og er aðaleinkunn hans án skeiðs 9,02.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH