Heimildarmyndin „Úr haga í hendur“ í Bíó Paradís
Skjáskot úr heimildarmyndinni "Úr haga í hendur"
Kvikmyndin „Úr haga í hendur“ verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld (sunnudag 27.03) kl. 19:00 í sal 3 en einnig verður hún sýnd á fimmtudaginn (31.03) kl. 17:00 í sal 1 og verður þá einnig boðið upp á Q&A eftir sýninguna. Myndin verður svo sýnd á sunnudaginn 03.04 kl. 21:00 í sal 2
Myndin keppir í flokki heimildarverka á Stockfish film festival.
Í maí 2021 fjallaði Eiðfaxi um heimildarmyndina „Úr haga í hendur“ og er hægt að lesa viðtalið við kvikmyndargerðarkonuna Þurý Báru Birgisdóttur HÉR. Myndin segir frá ungum stóðhestum sem eru að koma til tamningar og eru viðmælendur þau Olil Amble, Bergur Jónsson, Brynja Amble Gísladóttir og Elin Holst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH