Herkúles á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir sköpulag

  • 8. október 2020
  • Fréttir

Af þeim stóðhestum sem áttu 10 eða fleiri afkvæmi sýnd í fullnaðardómi á árinu hlutu afkvæmi Herkúlesar frá Ragnheiðarstöðum að meðaltali hæst fyrir sköpulag.

Fyrr í vikunni var fjallað um þá stóðhesta sem áttu 4-9 afkvæmi sýnd í fullnaðardómi á árinu og meðaltal sköpulagseiginleika skoðað. Nú er röðin komin að þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri sýnd afkvæmi í ár og rýnum við í meðaltöl afkvæma þeirra í þeim eiginleikum sem dæmdir eru í sköpulagi.

Alls eru þeir hestar 37 talsins. Sá sem á flest afkvæmi með fullnaðardóm í ár er Spuni frá Vesturkoti en þau eru alls 51 talsins. Með lægstan meðalaldur afkvæma er Konsert frá Hofi en þau 37 afkvæmi hans sem komu fram í ár voru einungis 4,8 vetra að meðaltali.

Herkúles frá Ragnheiðarstöðum á 11 dæmd afkvæmi í fullnaðardómi í ár og er meðalaldur þeirra 5,6. ár.

Afkvæmi hans sem til dóms koma eru samkvæmt þessu fallega sköpuð en þau hafa hæsta meðaltalið í fjórum eiginleikum og auk þess með hæsta sköpulags einkunn að meðaltali. Eiginleikarnir eru höfuð (me.8,36), háls, herðar og bógar (me.8,73), samræmi (me.8,73) og prúðleiki (me.8,45). Þá er eins og áður segir meðaltal þeirra fyrir sköpulag hæst af þeim hestum sem eiga 10 fullnaðardæmd afkvæmi eða fleiri á árinu en þau hlutu 8,475 að meðaltali.

Þess má geta að Hylur frá Flagbjarnarholti, sonur Herkúlesar, setti í ár heimsmet þegar hann hlaut 9,09 fyrir sköpulag.

Afkvæmi Mjölnis frá Hlemmiskeiði hlutu að meðaltali hæstu einkunnina fyrir bak og lend en hún er 8,68, alls voru 11 afkvæmi hans sýnd í ár,  meðalaldur þeirra 7,5 ár.

Eldur frá Torfunesi á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir fótagerð meðaltal þeirra fyrir þann eiginileika er 8,50. Alls voru sýnd 19 afkvæmi hans í fullnaðardómi í ár og var meðalaldur þeirra. 6,6 ár.

Ölnir frá Akranesi og Viti frá Kagaðarhóli skila, samkvæmt þessari töflu, bestum réttleika. Afkvæmi þeirra fengu að meðaltali 8,00 fyrir þann eiginleika.

Lord frá Vatnsleysi átti þau afkvæmi sem hæst hlutu fyrir hófa að meðaltali, einkunn þeirra. 8,55. Hann átti alls 11 sýnd afkvæmi í ár og var meðalaldur þeirra 6,4 ár.

 

 

Hér fyrir neðan má sjá meðaltals einkunnir afkvæma þessarra stóðhesta í öllum eiginleikum dæmdum í sköpulagi.

 

Síðar meir munum við taka fyrir, hér á vefsíðu Eiðfaxa, hæfileikaeinkunnir afkvæma þessara stóðhest.

 

 

 

 

 

 

 

Nafn fj.afkvæma Meðalaldur Höfuð Háls,herðar

&bógar

Bak&lend Samræmi Fótagerð Réttleiki Hófar Prúðleiki Sköpulag
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 11 5,6 8,36 8,73 8,32 8,73 8,41 7,55 8,36 8,45 8,475
Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 11 7,5 7,73 8,55 8,68 8,36 8,00 7,82 8,36 7,95 8,329
Arður frá Brautarholti 17 6,7 8,24 8,47 8,26 8,38 8,06 7,85 8,50 7,82 8,301
Konsert frá Hofi 37 4,8 8,04 8,39 8,38 8,54 8,24 7,66 8,32 7,61 8,297
Skýr frá Skálakoti 34 5,6 8,01 8,38 8,32 8,41 8,40 7,81 8,25 7,99 8,291
Ölnir frá Akranesi 21 4,9 7,86 8,38 8,40 8,36 8,12 8,00 8,19 8,17 8,261
Lord frá Vatnsleysu 11 6,4 7,73 8,23 8,14 8,36 8,41 7,91 8,55 8,14 8,256
Framherji frá Flagbjarnarholti 17 6,2 8,06 8,32 8,18 8,44 8,24 7,82 8,35 7,79 8,252
Trymbill frá Stóra-Ási 14 5,9 8,18 8,61 8,43 8,29 7,86 7,89 8,00 7,89 8,247
Spuni frá Vesturkoti 51 6,4 8,00 8,40 8,27 8,32 8,20 7,78 8,32 7,69 8,243
Hróður frá Refsstöðum 16 7,3 8,19 8,38 8,41 8,38 8,22 7,91 7,94 7,88 8,241
Loki frá Selfossi 20 5,8 8,00 8,45 8,20 8,43 7,90 7,70 8,40 7,48 8,226
Eldur frá Torfunesi 19 6,6 7,97 8,47 8,08 8,21 8,50 7,82 7,97 8,11 8,209
Hrannar frá Flugumýri II 35 5,6 7,73 8,21 8,46 8,46 7,96 7,81 8,33 7,37 8,201
Arion frá Eystra-Fróðholti 38 6,0 7,72 8,30 8,26 8,43 8,12 7,49 8,43 7,36 8,199
Hrímnir frá Ósi 13 6,5 7,58 8,27 8,46 8,15 8,12 7,69 8,42 8,00 8,197
Kiljan frá Steinnesi 18 6,8 7,81 8,42 8,25 8,31 7,89 7,86 8,33 7,22 8,179
Prins frá Knutshyttan 10 7,0 7,90 8,35 8,10 8,40 7,95 7,60 8,30 7,70 8,172
Stáli frá Kjarri 39 6,2 7,79 8,38 8,17 8,40 7,87 7,78 8,24 7,49 8,167
Álfur frá Selfossi 29 6,8 7,97 8,29 8,02 8,29 8,10 7,69 8,43 7,66 8,167
Sær frá Bakkakoti 14 7,7 8,04 8,36 8,14 8,39 7,96 7,46 8,25 7,32 8,156
Viktor frá Diisa 11 7,1 8,09 8,36 7,95 8,41 7,95 7,68 8,09 7,95 8,151
Ómur frá Kvistum 36 6,3 7,86 8,19 8,24 8,31 8,07 7,64 8,21 7,74 8,141
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 14 6,3 8,18 8,11 7,89 8,32 8,25 7,82 8,18 8,29 8,139
Sjóður frá Kirkjubæ 27 6,0 7,93 8,41 8,06 8,17 7,91 7,69 8,22 7,85 8,128
Hnokki frá Fellskoti 11 5,6 8,05 8,27 8,14 8,36 7,68 7,64 8,18 7,64 8,114
Kjerúlf frá Kollaleiru 14 6,6 7,68 8,29 8,00 8,11 7,79 7,89 8,50 8,07 8,114
Aron frá Strandarhöfði 11 6,8 7,55 8,14 8,41 8,23 7,95 7,36 8,23 8,05 8,108
Óskasteinn frá íbishóli 20 6,5 7,55 8,15 8,20 8,28 7,93 7,60 8,45 7,38 8,100
Álfasteinn frá Selfossi 15 6,2 8,20 8,33 8,03 8,17 8,10 7,80 7,90 7,67 8,097
Viti frá Kagaðarhóli 15 6,0 8,00 8,40 8,03 8,07 7,90 8,00 8,03 7,63 8,087
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 12 6,7 8,04 8,29 8,00 8,21 7,92 7,71 8,08 7,58 8,078
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 11 5,4 8,00 8,18 7,95 8,09 8,18 7,77 8,36 7,18 8,077
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 19 6,2 7,74 8,13 8,00 8,11 8,34 7,76 8,11 7,84 8,069
Aðall frá Nýjabæ 12 6,3 8,00 8,38 7,92 8,00 7,83 7,71 8,25 7,67 8,058
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 11 6,1 8,05 8,36 8,09 8,00 8,14 7,73 7,82 7,32 8,045
Oliver frá Kvistum 10 6,6 8,05 8,25 7,75 8,25 7,65 7,25 8,20 8,00 8,018

 

Ef þú ert að skoða töfluna í síma er hægt að færa sig fram og til baka á töflunni til þess að sjá alla eiginleika.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link