Hestafimleikar fara af stað hjá Hestamannafélaginu Geysi

  • 29. október 2023
  • Tilkynning
Kynning í anddyri Rangárhallarinnar á fimmtudaginn

Kynning í anddyri Rangárhallarinnar fimmtudaginn 2. nóvember kl. 17. Til þess að taka þátt í hestafimleikum þarf ekki að koma með eða eiga hest. Hestafimleikar eru hugsaðir fyrir þá sem áhuga hafa á skemmtilegri íþrótt sem sameinar fimleika og hestamennsku.

Allir geta tekið þátt óháð reynslu þeirra af hestamennsku eða fimleikum.

Í haust stendur Hestamannafélagið Geysir fyrir námskeiði sem verður einu sinni í viku yfir sex vikna tímabil frá 7. nóvember til 12. desember og fer námskeiðið fram í Rangárhöllinni á Hellu.

Börn fædd 2007-2019 geta skráð sig.
Skráningargjald er 15.000 kr.

Reiðkennari : Jónína Lilja Pálmadóttir

Skráning : https://www.sportabler.com/shop/geysir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link