Landsamband hestamanna Hestaíþróttavöllur í Þjóðarhöllinni

  • 3. maí 2023
  • Tilkynning
Skora á framkvæmdanefnd að gert verði ráð fyrir hestaíþróttum í nýrri þjóðarhöll

Landssamband hestamannafélaga hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau skora á alla þá sem koma að undirbúningi og hönnun Þjóðarhallarinnar í Laugardal að gera ráð fyrir hestaíþróttinni rétt eins og öðrum stórum íþróttagreinum.

„Landssamband hestamannafélaga er fjórða fjölmennasta sérsambandið innan ÍSÍ en hestaíþróttin er ein fárra íþróttagreina sem ekki hefur aðgang að löglegum keppnisvelli innanhúss. Ljóst er að það stendur íþróttinni verulega fyrir þrifum og hamlar framgangi þessarar stóru íþróttagreinar,“ segir í fréttatilkynningunni.

Forsætisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg gáfu út sameiginlega fréttatilkynningu um stöðu og næstu skref í tengslum við Þjóðarhöllina. Kemur þar fram í tillögum framkvæmdarnefndarinnar um Þjóðarhöllina að gólfið eigi að vera fjölnota og sæti verði að hluta til færanleg. Einnig kemur þar fram að þjóðarhöllin muni umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum og að þjóðarhöllin verði fjölnota mannvirki fyrir íþróttir, menningu, kennslu og viðburði.

„Landssamband hestamannafélaga er fjórða fjölmennasta sérsambandið inna ÍSÍ en hestaíþróttin er ein fárra íþróttagreina sem ekki hefur aðgang að löglegum keppnisvelli innanhúss. Ljóst er að það stendur íþróttinni verulega fyrir þrifum og hamlar framgangi þessarar stóru íþróttagreinar,“ segir í fréttatilkynningu LH og gerir stjórn LH kröfu um að gert verði ráð fyrir hestaíþróttinni þegar hugað verður að hönnun gólfs, aðkomu og aðstöðu fyrir hesta og hestakerrur, einnig í rekstrar- og fjárhagsáætlun sem og þegar hugað verður að framtíðarskipulagi og tímaöflun hallarinnar.

Hægt er að lesa fréttatilkynningu LH í heild sinni HÉR

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link