Hestaugað
Miðvikudaginn 22. febrúar heldur Susanne Kaarsholm, dýralæknir og félagi í Samtökum danskra augndýralækna (The Danish Society of Veterinary Ophthalmology), fræðslufyrirlestur í Reiðhöllinni í Víðidal fyrir hinn almenna hesteiganda um augu hestsins, algengustu sjúkdóma þeirra og meiðsli sem og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.00 og flytur Susanne hann á ensku.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur
Fyrirlesturinn er opinn öllum.
Sjá viðburð HÉR
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa