Huginn frá Neðra-Seli verður til afnota í Austvaðsholti

  • 26. júní 2026
  • Tilkynning
Fimm vetra Kveikssonurinn Huginn frá Neðra-Seli verður til afnota í Austvaðsholti strax að loknu Landmóti hestamann þar sem hann mun koma fram.

„Huginn fór í feiknalega góðan dóm á vormánuðum þar sem hann hlaut 8,78 fyrir hæfileika, 8,40 fyrir byggingu og endar því með 8,65 í aðaleinkunn. Huginn er fjórði efsti hestur í fimm vetra flokki inn á Landsmót og fjórða hæðst dæmda afkvæmi Keiks frá Stangarlæk.

Kveikur gerði garðinn frægan á Landsmóti í Reykjavík árið 2018 þar sem hann fékk hvorki meira né minna en 8,76 í aðaleinkunn þrátt fyrir að vera klárhestur. Mikið af frábærum hrossum hafa komið í dóm undan Kveik undanfarin ár eða alls 93 hross sem hefði dugað til heiðursverðlauna.

Móðir Hugins, Hrönn frá Neðra-Seli var sýnd á Landmóti árið 2014 í sjö vetra flokki og hlaut aðaleinkunina 8,25. Hrönn er undan heiðursverðulauna hrossunum Stála frá Kjarri og Óperu frá Gígjarhóli.

Huginn er einstaklega viljugur, samvinnufús og með mikil gangskil eins og sjá má á hæfileikadómi. Hann er lofthár og skartar sérstaklega góðum einkunum fyrir yfirlínu þar sem hann hlaut meðal annars 9,5 fyrir bak og lend.

Þau afkvæmi sem fædd eru undan Huginn eiga það sammerkt að vera einstaklega lofthá og yfirveguð.

Eigendur Hugins hafa ákveðið að stilla verði á follatolli í hóf og er gjaldið kr. 129.000 auk vsk og er þar innifalið girðingagjald og einn sónar. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Röggu í Austvaðsholti í síma 865-0027 eða Garðar Hólm í síma 899-8811.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link