Jólablað Eiðfaxa – Efnistökin fjölbreytt!

  • 4. desember 2019
  • Fréttir
Jólablað Eiðfaxa fer í prentsmiðju núna á fimmtudaginn og fer því í drefingu til áskrifenda eftir næstu helgi. Jólablaðið er tvöföld hátíðarútgáfa.

Í blaðinu er að finna bæði skemmtilegt og fróðlegt efni. Meðal efnistaka eru viðamikil viðtöl við:

Knapa ársins Jóhann Rúnar Skúlason þar sem hann fer yfir árið í ár og ferilinn.

Hrossaræktendur ársins þau Pál Stefánsson og Eddu Björk Ólafsdóttur á Stuðlum í Ölfusi. Þau hafa ræktað hross á Stuðlum í tæplega þrjátíu ár og við fræðumst um þau og þeirra hrossarækt.

Efnilegasta knapa ársins, Benjamín Sand Ingólfsson. Benjamín skaust upp á stjörnuhimininn í sumar þegar hann varð heimsmeistari ungmenna í gæðingaskeiði og tvöfaldur Íslandsmeistari. Benjamín er hógvær og kurteis ungur maður sem gaman er að lesa um.

Þá eru pistlar frá forystumönnum í hrossarækt þeim Gunnari Sturlusyni Forseta FEIF, Lárusi Hannessyni formanni LH og Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda.

Einar Ásgeirsson fóðurfræðingur fræðir okkur um hvað þarf að hafa við huga við innifóðrun reiðhesta, en nú eru margir hestamenn að taka hesta sína á hús.

Kristinn Hugason heldur áfram með greinaflokkinn „Hestur séður með mínum augum“ nú tekur hann til við eiginleikanna háls,herðar og bógar og bak og lend.

Sænski ljósmyndarinn Petra Lönnqvist tók forsíðumyndina sem prýðir jólablaðið. Viðtal við hana um ljósmyndaáhuga hennar og ást á Íslandi má finna í blaðinu.

Dr. Simon Curtis er einn fremst fræðimaður í heiminum í dag í öllu sem viðkemur járningum, hann var staddur hér á landi í haust og hitti blaðamaður Eiðfaxa hann af því tilefni og spurði út í ýmislegt fróðlegt er tengist járningum.

Þá er að finna viðtal við þau Bernhard og Piu sem búa á hestabúgarðinum Hesthólum í Norður-Bæjaralandi í Þýskalandi, þar sem þau stunda nýstárlega hestamennsku.

Þetta ásamt ýmsu fleiru má finna í jólablaði Eiðfaxa, ekki er of seint að gerast áskrifandi og tryggja sér skemmtilegt og hestatengt lesefni yfir jólin.

 

Gerast má áskrifandi með því að smella hér.

 

Eða hringja í síma 537-9200

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link