Komið í ljós hver hlýtur Sleipnisbikarinn á Landsmóti
Eiðfaxi sagði frá því í gær hvaða stóðhestar ættu möguleika á að koma fram með afkvæmahóp á Landsmótinu og taka á móti heiðursverðlaunum.
Ekki var ljóst hver yrði Sleipnisbikarhafinn 2022 en þeri Sjóður frá Kirkjubæ og Jarl frá Árbæjarhjáleigu II voru jafnir í kynbótamati. Báðir með 124 stig. Samkvæmt upplýsingum Eiðfaxa var skorið úr með aukastöfum og hefur það verið staðfest að Sjóður frá Kirkjubæ mun taka á móti Sleipnisbikarnum á Landsmótinu.
Átta stóðhestar náðu lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi og fimm til heiðursverðlauna.
Auk Sjóðs og Jarls eru þetta Trymbill frá Stóra-Ási (123 stig), Hrannar frá Flugumýri II (122 stig) og Eldur frá Torfunesi (119 stig) sem hafa náð lágmörkum til heiðursverðlauna.
Þeir hestar sem hafa möguleika á að koma fram með afkvæmahóp og taka á móti heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi á Landsmótinu
| Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi | Aldur | Ae. | Ae. án skeiðs | Fj. afkv. m. fullnaðardóm |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 15 | 124 | 122 | 53 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu | 15 | 124 | 117 | 51 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 17 | 123 | 112 | 50 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 16 | 122 | 119 | 76 |
| Eldur frá Torfunesi | 15 | 119 | 112 | 50 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH