Norðurlandamót Laugardagur til lukku!

  • 10. ágúst 2024
  • Fréttir

Susanne Larsen Murphy og Völsungur frá Skeiðvöllum keppa bæði til A-úrslita í fimmgangi og A-flokki á morgun. Ljósmynd: Anja Mogensen

Norðurlandameistarar krýndir í dag í nokkrum greinum

Norðurlandamótið í Herning nær hámarki nú um helgina þegar úrslit fara fram og Norðurlandameistarar verða krýndir. Laugardagsmorgunin hófst á nokkrum úrslitum þar sem Ísland átti einn þátttakenda, en það var Hekla Rán Hannesdóttir sem keppti í B-úrslitum í fjórgangi ungmenna.

Hekla keppti sem fyrr á geldingnum Hugin frá Halakoti en náði ekki að vinna sér inn þátttökurétt í A-úrslitum. Hún getur því einbeitt sér að A-úrslitunum í gæðingakeppni á morgun þar sem hún er efst í ungmennaflokki.

Hekla Rán setur nú alla sína einbeitingu á A-úrslit í ungmennaflokki. Ljósmynd: Anja Mogensen

Seinna í dag munu Norðurlandameistarar m.a. verða krýndir í 250 metra skeiði og fimmgangi ungmenna. Öll þau íslensku ungmenni sem tóku þátt í fimmgangi keppa til úrslita, það varð ljóst eftir sigur Védísar Huldar Sigurðardóttur í B-úrslitum í gærkvöldi. Auk hennar eru það þau Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Matthías Sigurðsson sem keppa þar til úrslita. Efst í fimmgangnum er þó Tekla Petersson frá Svíþjóð, hún er líklegust til sigurs á hryssu sinni Vatnadísi fra Noastallet en þær hafa náð góðum árangri í þeirri grein sem og samanlögðum fimmgangsgreinum.

Þá keppir Sigurður Sigurðarson til B-úrslita til tölti í dag á Tígli frá Kleiva. Hann var jafn öðrum keppenda í fimmta sæti en lægri á aukastöfum.

Helstu úrslit morgunsins eru þau að Olivia Agerhill er Norðurlandameistari í fimmgangi unglinga eftir sigur í A-úrslitum.  Thea Hansen frá Danmörku á Vörðu frá Feti sigraði keppinauta sína í fjórgangi ungmenna og keppir því til A-úrslita. Susanne Larsen Murphy á Völsungi frá Skeiðvöllum vann sér inn þátttökurétt í A-úrslitum í fimmgangi með einkunnina 7,14 í B-úrslitum.

B-úrslitin í fjórgangi meistara voru feykisterk en það var Jessica Hou Geertsen á Hag frá Vorsabæ II sem fór með sigur úr býtum og keppir til A-úrslita á morgun.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link