Liðakynning Uppsveitadeildarinnar

  • 16. janúar 2023
  • Tilkynning
Síðasta liðið sem deildin kynnir til leiks er lið Storm Rider

Uppsveitadeildin verður á sýnum stað í vetur í reiðhöllinni á Flúðum. Fyrsta keppniskvöldið er 10. febrúar en keppt verður í fjórgangi. Mótin eru með ca. mánaðar millibili en næst er keppt í fimmgangi 10. mars og lokamótið er 14. apríl en þá er keppt í skeiði og tölti.

Stjórn Uppsveitadeildarinnar er byrjað að kynna liðin sem keppa í deildinni í vetur. Seinasta liðið sem þau kynna til leiks í Uppsveitadeildinni 2023 er lið Storm Rider

May be an image of 1 person, riding a horse and horse

Anna Kristín Friðriksdóttir
Reiðkennari, tamningameistari og bóndadóttir frá stórbýlinu Grund í Svarfaðardal bráðefnileg og harðdugleg og hefur unnið flest það sem hægt er að vinna á Norðurlandi ,og fáir orðið Íþróttamenn Hrings oftar , stundar tamninga og þjálfun í Vesturkoti og sér til þess að hrossin fái morgungjöf þar.

May be an image of 2 people, horse and outdoors

Maiju Varis
Reiðkennari ,þjálfari og upprennandi kynbótasýningarstjarna. Upphaflega frá Finnlandi en er orðinn íslensk að mestu er að stimpla sig meir og meir inn á keppnisbrautina og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni einhver alefnilegasti Finni sem sést hefur hér á landi um langa hríð.

May be an image of 1 person, riding a horse and horse

Daníel Larsen
Pollrólegur hestafræðingur af Hólum og tamningarmeistari sem getur tamið allt sem hann ætlar sér sunnlendingur í húð og hár og vill hvergi annarstaðar vera, þótti gríðarlega efnileg skytta á sínum yngri árum . Ætlar sér stóra hluti í deildinni í vetur og ætlar að láta verkin tala.

Þórarinn Ragnarsson
Þarf vart að kynna tengdamömmudrauminn. Búsettur í Vesturkoti hefur unnið nánast allt sem vert er að vinna á keppnisbrautinni átt magnaðar sýningar á kynbótabrautinni hefur mest verið heimavinnandi síðustu misserin að byggja hús og ala upp börnin hennar Huldu en nú ætlar hann sér stóra hluti svo fylgist þið með.

May be an image of 1 person, horse and outdoors

Reynir Örn Pálmason liðstjóri
Húsvörður og bílstjóri Margrétarhofi fær kannski að vera með í 1 grein en er aðallega með í liðinu til að bæta heildarútliðið á liðinu þykir hógvær, hlédrægur og einstaklega skemtilegur maður .

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar