Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Meistaradeild Líflands 2023 hefst á keppni í fjórgangi V1

  • 22. janúar 2023
  • Tilkynning

Það fer senn að líða að fyrsta móti Meistaradeildar Líflands 2023, fyrsta mótið verður fimmtudaginn 26. janúar í fjórgangi V1.
Mótin haldin í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli.

Veitingar verða í boði í veitingasalnum bæði fyrir fyrir keppni og í hléi. Tómas Þóroddsson,  veitingaeigandi á Selfossi, mun sjá um veitingarnar, heitan mat og drykki, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Við hvetjum alla til að mæta tímanlega og nýta sér þessa þjónustu sem eigendur HorseDay hallarinnar eru að bjóða upp á.

í fjórgangi en í fyrra voru það Sigurður Sigurðarson og Leikur frá Vesturkoti sem stóðu uppi sem sigurvegarar í fjórgangi V1 og verður spennandi að sjá hvort þeir mæti aftur til leiks til að verja titilinn.

Hver ætli að vinni fjórganginn í ár?

Við í stjórn Meistaradeild Líflands hlökkum mikið til að tímabilið hefjist og vonumst til að sjá sem flesta í stúkunni en það verður frítt inn í höllina í boði Íslenskra Verðbréfa. Þeir sem ekki komast þá að sjálfsögðu mælum við með að allir tryggi sér áskrift hjá Alendis.is og fylgist með í beinni útsendingu.

 

Stjórn Meistaradeild Líflands

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar