Meistaradeild Líflands og æskunnar
Stigahæsta liðið árið 2024 varð lið Hrímnis/Hest.is. F.v.: Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson, Friðrik Snær Friðriksson, Ragnar Snær Viðarsson og Dagur Sigurðarson.
Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í níunda sinn veturinn 2025. Þátttakendur eru unglingar á aldrinum 13 – 17 ára (fæðingarár 2008 – 2012).
Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri ársins 2024. Þar er átt við árangur á löglegum mótum. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið.
Hvert lið skipar fjóra knapa og keppa þeir allir í öllum keppnisgreinum og reynir það nokkuð á hestakost og er mikil og krefjandi skuldbinding.
Keppt verður í: Fjórgangi V1, fimmgangi F1, tölti T1, gæðingalist, slaktaumatölti T2 og gæðingaskeiði PP1.
Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér. Umsækjandi hlaðar því niður/vistar á sinni tölvu, fyllir það út og sendir inn.
Umsóknarfrestur er til 20.október 2024 og sendist á netfangið: [email protected]
Við hvetjum áhugasama knapa að kynna sér deildina á heimasíðunni mdeild.is
Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda og þátttakendur skrifa undir knapasamning um þátttöku í deildinni. Þar sem einnig öll liðin verða kynnt.
Dagsetningar og staðsetning deildarinnar verður auglýst síðar.
Stjórn Meistaradeildar Líflands og æskunnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH