Meistaradeild Líflands og æskunnar – umsóknir veturinn 2024

  • 3. september 2023
  • Tilkynning

Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í áttunda sinn veturinn 2024.
Þátttakendur eru unglingar á aldrinum 13-17 ára (fæðingarár 2007-2011).

Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri ársins 2023. Þar er
átt við árangur á löglegum mótum. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja
sig sjálfir saman í lið. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2023.
Umsóknareyðublað má finna á vef deildarinnar, www.mdeild.is og þar er einnig að finna
ýmsar nytsamlegar upplýsingar.

Hvert lið skipar fjóra knapa og keppa þeir allir í öllum keppnisgreinum og reynir það nokkuð
á hestakost og er mikil og krefjandi skuldbinding.
Keppt verður í: fjórgangi V1, fimmgangi F1, tölti T1, gæðingafimi, slaktaumatölti T2 og
gæðingaskeiði PP1.

Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda þeirra í
haust og þátttakendur skrifa undir knapasamning um þátttöku í deildinni. Þar verða einnig
öll liðin kynnt til leiks.

Stjórn Meistaradeildar Líflands & æskunnar

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar