Meistarar mæta til leiks!
Það styttist í afmælissýningu Félags Tamningamanna en hún mun fara fram laugardaginn 17.febrúar í Lýsishöllinni í Fák í Víðidal og hefst stundvíslega kl.11:00. Frítt er inn á sýninguna. Hestavöruverslunin Ástund er bakhjarl sýningarinnar.
Næstu atriði sem við kynnum til leiks eru atriði Tamningameistaranna Sigurbjörns Bárðarsonar og Eyjólfs Ísólfssonar.
Meistari Sigurbjörn mætir með nokkra hesta til leiks. Sjálfur mun hann sýna og segja frá sögu reiðmennskunnar á léttum nótum. Að sjálfsögðu verður einnig fjallað um skeið og skeiðreiðmennsku auk þess sem úrvals knapar verða honum innan handar.
Meistari Eyjólfur og aðjúnkt í hestafræðum við Landbúnaðarháskólann í Svíþjóð mætir ásamt afreksknapanum Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur. Eyjólfur mun fjalla almennt um þjálfun hesta og leggja áherslu á kennslu, skilning og traust.
Ekki missa af afmælissýningu Félags Tamningamanna laugardaginn 17.febrúar!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts