Mikið um dýrðir í Frederikshavn
									  
																	Mikið af fólki sótti mótið heim enda komu þar fram margir frábærir knapar og hestar. Öll keppni fór fram á laugardaginn en byrjað var á forkeppni um morguninn, A-úrslit voru haldin um miðjan daginn og svo var hápunkturinn, A-úrslit um kvöldið.
Það var Þórður Þorgeirsson sem sigraði keppni í fimmgangi á Kraft von Horsemate með einkunnina 8,38 í úrslitum. Í öðru sæti varð Steffi Svendsen á Mídasi fra Jelshøjen og í þriðja sæti varð Magnús Skúlason á Hraunari frá Efri-Rauðalæk.
Í fjórgangi var það Styrmir Árnason sem hreppti gullið á hestinum Mugison frá Þjóðólfshaga 1 fékk hann í einkunn 8,17. Í öðru sæti varð Steffi Svendsen á Vita frá Kagaðarhóli og þriðji varð Christina Lund á Lukku-Blesa frá Selfossi.
Jóhann Rúnar Skúlason sigraði keppni í tölti á Finnboga frá Minni-Reykjum með 9,16 í einkunn í öðru sæti varð Sigurðir Óli Kristinsson á Sólbjarti frá Kjarri og í því þriðja Petronella Davidson á Nóa frá Brösarpsgården.
Þá hlaut Steffi Svendsen reiðmennsku verðlaun Feif á mótinu.
Myndir sem fylgja fréttinni eru fengnar af Facebook síðu mótsins.
| Tölt | |||
| Sæti. | Knapi | Hestur | Einkunna | 
| 1 | Johann R. Skulason | Finnbogi frá Minni-Reykjum | 9,16 | 
| 2 | Sigurður Óli Kristinsson | Sólbjartur frá Kjarri | 8,34 | 
| 3 | Petronella Davidsson | Noi från Brösarpsgården | 7,72 | 
| 4 | Stymir Árnason | Ljóri frá Hörgslandi | 7,67 | 
| 5 | Finnur Bessi Svarvasson | Glitnir frá Margrétarhofi | 7,33 | 
| 6 | Bernt Severinsen | Terna fra Kleiva | 5,72 | 

Jóhann Skúlason stóð efstur í tölti
| Fimmgangur | |||
| Sæti. | Knapi | Hestur | Einkunn | 
| 1 | Þórdur Þorgeirsson | Kraftur von Horsemate | 8,38 | 
| 2 | Steffi Svendsen | Mídas fra Jelshøjen | 8,09 | 
| 3 | Magnús Skúlason | Hraunar frá Efri-Rauðalæk | 7,92 | 
| 4 | Stymir Árnason | Jarl frá Höskuldsstöðum | 7,79 | 
| 5 | Koki Olufsson | Frami vom Hrafnsholt | 6,71 | 
| 6 | Vigdís Matthíasdóttir | Herdís från Prästgården | 4,17 | 

Þórður Þorgeirsson stóð efstur í fimmgangi
| Fjórgangur | |||
| Sæti | Knapi | Hestur | Einkunn | 
| 1 | Stymir Árnason | Mugison frá Þjóðólfshaga 1 | 8,17 | 
| 2 | Steffi Svendsen | Viti frá Kagaðarhóli | 8,05 | 
| 3 | Christina Lund | Lukku-Blesi frá Selfossi | 7,79 | 
| 4 | Finnur Bessi Svarvasson | Glitnir frá Margrétarhofi | 7,54 | 
| 5 | Sys Pilegaard | Beta fra Sepi | 7,46 | 
| 6 | Madeleine Wickström | Heiðna frá Blesastöðum 1A | 7,08 | 

Styrmir Árnason sigurvegari í fjórgangi
Öll úrslit mótsins má nálgast með því að smella hér
                 
            
                 
            
                            	
                                                Minningarorð um Ragnar Tómasson