Nýir tímar hjá Eiðfaxa – Sértilboð fyrir áskrifendur!
Áskrifendur Eiðfaxa fá 20% afslátt af vikupössum á Landsmót
Með nýrri útgáfu Eiðfaxa hefur verið slegin nýr tónn í sögu blaðsins. Markmiðið er einfalt; að halda úti metnaðarfullum og áhugaverðum fjölmiðli fyrir allt hestafólk og einnig að gera enn betur voð áskrifendur okkar því þeir eru lífæð þess að Eiðfaxi haldi áfram að koma út.
Meira efni, sama verð
Eiðfaxi fylgir árstíðunum og Eiðfaxi Vetur er ritið sem fór í dreifingu í gær. Á þessu ári eiga áskrifendur Eiðfaxa því von á Eiðfaxa Vor, Eiðfaxa Sumar og Eiðfaxa haust inn um lúguna. Þessu til viðbótar kemur Eiðfaxi Árbók út í desember og verður sú útgáfa mjög vegleg að umfangi og innihaldi. Með þessum fimm útgáfum munu áskrifendur fá til sín talsvert meira efni á ári heldur en verið hefur en áskriftarverðið mun haldast óbreytt.
En það er ekki allt…
Því til viðbótar fylgdi Eiðfaxa Vetur ávísun til áskrifenda að upphæð 2.500 kr. sem hægt verður að nota sem fullnaðargreiðslu fyrir Stóðhestabók Eiðfaxa á helstu sölustöðum. Stóðhestabókin er því ókeypis fyrir alla áskrifendur okkar!
Og rúsínan í pylsuendanum
Eiðfaxi býður áskrifendum sínum 20% afslátt af vikupössum á Landsmót. Í stað 19.990 kr. kostar vikupassinn aðeins 15.990 kr. Allir áskrifendur Eiðfaxa þann 1. apríl nk. geta nýtt sér tilboðið með að fara inn á tix.is/eidfaxi, skrá kennitöluna sína í þartilgerðan reit og geta þá keypt að hámarki tvo miða á þessu sértilboði sem gildir frá 1. til 20. apríl næstkomandi.
Sem fyrr segir mun áskriftin að Eiðfaxa haldast óbreytt – 1.690 kr. á mánuði – og bendum við áskrifendum á að í stað þess að fá senda kröfu mánaðarlega er nú hægt að færa áskriftina á greiðslukort inn á eidfaxi.is sem eykur öll þægindi til muna. Það eina sem þarf að gera er að smella á „KOMDU Í ÁSKRIFT“ efst á forsíðu vefsvæðisins og fylla út formið sem þar er. Málið klárt. Þá er einnig hægt að hringja í síma 537-9200 eða senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH