Nýr uppgjörsþáttur frá Alendis

  • 14. febrúar 2023
  • Tilkynning

Hanne Smidesang og Tónn frá Hjarðartúni Mynd: Meistaradeild Líflands

Uppgjörsþáttur um slaktaumatöltið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum.

Alendis sýnir beint frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum ásamt því að gefa út annað efni tengt deildinni. Í kvöld kom út þáttur sem kallast Aftermath þar sem farið er yfir síðasta keppniskvöld deildarinnar en þá var keppt í slaktaumatölti. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni HÉR.

Guðmundur Björgvinsson er þáttastjórnandi og fær hann til sín góða gesti. Halldór Gunnar Victorsson yfirdómari Meistaradeildar fór yfir dómgæslu kvöldsins, Olil Amble og Hinrik Bragason komu í sett og gáfu sín sérfræði álit ásamt Hanne Smidesang. Hanne hafnaði í 2.sæti eftir að hafa keypt sig inn í deildina og fáum við að skyggnast aðeins inn í hennar líf og tilkomu þess að hún skráði sig í þessa grein.

Hér fyrir neðan er smá brot úr þættinum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link