Nýtt frumtamninganámskeið í Reiðmanninum
Námið er hagnýtt átta vikna lotunám fyrir hestafólk sem vill fá meiri þjálfun og reynslu í tamningum unghrossa.
„Á námskeiðinu vinna nemendur markvisst með eigið unghross undir leiðsögn reyndra reiðkennara og tamningamanna. Verkleg kennsla, heimavinna og regluleg eftirfylgni á Teams mynda samfellda heild þar sem þú færð stuðning í gegnum allt ferlið,“ segir í námslýsingu.
Áhersla er lögð á:
- Traust, ró og örugg samskipti
- Grunnvinnu og hringteymingu
- Að lesa viðbrögð hestsins
- Undirbúning fyrir fyrstu skref undir knapa
- Grunnábendingar: Áfram, stopp og stefnubreytingar
- Fyrstu reiðtúra utandyra ef hesturinn er tilbúinn
- Einstaklingsmiðaða framvindu án þess að flýta ferlinu
Námið hentar bæði þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í tamningum og þeim sem hafa einhverja reynslu en vilja bæta við sig þekkingu, öryggi og markvissari vinnubrögðum.
Kennslustaðir og kennarar:
– Hestamannafélagið Sprettur í Kópavogi
Kennari: Henna Siren
– Vesturkot í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Kennari: Þórarinn Ragnarsson
Námið er metið til 4 fein og er ætlað þátttakendum 18 ára og eldri.
Námsfyrirkomulag:
- 12 verklegar kennslustundir
- 3 leiðsagna- og stuðningstímar á Teams milli verklegra tíma
- Sjálfstæð og markviss vinna milli kennslutíma
- 1 fræðsluerindi á Teams um atferli hrossa
- Þátttaka í Fræðsludegi Reiðmannsins
Skráningarfrestur er til 31. ágúst. Skráningar og nánari upplýsingar: HÉR
Verð: 135.000 kr.
Nýtt frumtamninganámskeið í Reiðmanninum
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Hæst dæmdi hestur í heimi
Kynbótahross á Landsmóti
Punktamót hjá Geysi