Opið æfingamót í Gæðingalist

  • 16. febrúar 2024
  • Tilkynning
Skráningu lýkur á miðvikudaginn 21. febrúar

Laugardaginn 24.febrúar verður haldið opið æfingamót í Gæðingalist í Samskipahöllinni í Spretti milli kl.15-19. Boðið verður upp á mismunandi stærðir af keppnisvelli til að líkja eftir aðstæðum í hverri keppnisdeild fyrir sig (Meistaradeild æskunnar, Meistaradeild ungmenna og 1.deild).

Tveir dómarar dæma og gefa umsögn.

Hver knapi fær um 7-8 mín og því gefst tækifæri á að ríða um áður en sýning hefst og ræða stuttlega við dómara að sýningu lokinni. Auk þess fær hver knapi sent dómskjal með einkunnum og punktum um bætingar.

„Frábært tækifæri að æfa sig fyrir keppni í gæðingalist, fá góðar hugmyndir frá dómurum um bætingar og fá umsögn um æfingar og einkunnir,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti.

Takmarkaður fjöldi keppenda en skráning fer fram HÉR.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link