Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeildina
“Við stefnum á glæsileg mót árið 2024 og hafa dagsetningar löngu verið teknar frá í Samskipahöllinni. Ný lið sem hafa áhuga á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 7.október nk. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins. Þau lið sem féllu úr deildinni 2023 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2024,” segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti.
Riðin verða B-úrslit í öllum greinum nema gæðingaskeiði og mun sigurvegari B-úrslitanna ekki ríða A-úrslit
Umsóknir sendist á ahugamannad.spretts@gmail.com fyrir 7.október n.k.
Stjórn deildarinnar minnir á reglur Áhugamannadeildar Spretts nánar tiltekið lið 7 sem fjallar um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.
Hafa þeir knapar sem uppfylla önnur skilyrði 7. gr. reglanna keppnisrétt.
7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2. Knapar sem ekki hafa keppt í F1, V1, T1, T2 eða Meistaradeild síðastliðið 1 ár.
7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.
7.4 Þessar reglur gilda um öll mót, einnig innanhúsmót.
7.5 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta seinustu 3 ár
7.6 Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.7 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði
Dagsetningar móta 2024:
- 22.feb fjórgangur
- 14.mars slaktaumatölt
- 5.april fimmgangur
- 19.apríl tölt
- 20.apríl gæðingaskeið og lokahóf