Opið Íþróttamót Spretts 2023
Opið Íþróttamót Spretts verður samkvæmt dagskrá 11.-14.maí. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Sprettur áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.
Í tilkynningu frá hestamannafélaginu eru félagar hvattir til að skrá sig í sjálfboðavinnu á mótinu. „Það er mikil vinna sem liggur að baki undirbúningi og framkvæmd íþróttamótsins. Flest vinum við þetta í sjálfboðavinnu og með glöðu geði. Hins vegar viljum í nefndinni fara fram á að allir Sprettarar sem ætli að taka þátt í mótinu skili vinnuframlagi á mótinu sjálfu. Ef ekki knapi sjálfur þá einhver fullorðinn einstaklingur í hans stað. Þegar nær dregur verður sett upp vaktatafla þar sem knapar geta skráð sig. Hugmyndin er að hver og einn skili 2-4 klst. vinnuframlagi. Þetta er í annað sinn sem við reynum þessa útfærslu í Spretti og vonum við að þessi ,,tilskipun“ okkar muni mæta skilningi og jákvæðum viðbrögðum. Þetta fyrirkomulag reyndist okkur vel í fyrra og hvetjum við því keppendur til að leggja hönd á plóg. Margar hendur vinna létt verk,“ segir í tilkynningunni.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og keppnisgreinar:
- Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Tölt T3 – Tölt T7
- Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T7
- Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4
- 2. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7
- 1. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4
- Meistaraflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T2 – Tölt T4
- Skeiðgreinar verða í einum flokki fyrir alla.
- Fullorðinsflokkur: Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
- Skráningagjöld eru eftirfarandi:
- Barnaflokkur og unglingaflokkur, : 5000 kr.
- Ungennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 6000 kr.
- Skeiðgreinar: 6000 kr
Fyrirspurnir skulu berast á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts