Opið tölumót Harðar

  • 16. janúar 2024
  • Tilkynning
Allir flokkar í boði og keppt verður í fjórgangi.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á opið tölumót Harðar en skráningu lokar fimmtudaginn 18.janúar kl. 00:00. Keppt verður í fjórgangi V1 og er mótið opið. Keppt verður í barnaflokki og upp úr en þátttökugjald er 5.000 kr.

„Þrír dómarar munu dæma mótið og verður í boði að fá dómarablöð að móti loknu þar sem ritarar munu taka niður athugasemdir dómara eftir bestu getu. Í boði verður upphitunar aðsataða í Blíðubakka höllinni en hún er í aðeins 150 m fjarlægð frá reiðhöll Harðar. Aðeins er riðin forkeppni og ekki verða veitt verðlaun,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Harðar. Athygli er vakin á því að dagskrá gæti hafist fyrr ef þátttaka er mikil.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link