Örmerkinganámskeið í janúar 2023
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins áformar að halda örmerkinganámskeið í janúar 2023. Að námskeiði loknu geta þátttakendur sótt um leyfi til örmerkinga hrossa hjá Matvælastofnun, á grundvelli laga um velferð dýra. Námskeiðin verða haldin á þremur stöðum, verði þátttaka næg:
- Hvolsvöllur, miðvikudagur 4. janúar.
- Blönduós, fimmtudagur 12. janúar.
- Hvanneyri, fimmtudagur 19. janúar.
Um er að ræða eins dags námskeið, bæði bóklegt og verklegt, frá kl. 09:00 til 16:00. Námskeiðsgjald er kr. 50.000,- með einni örmerkingablokk innifalinni í verði. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig til þátttöku hjá Pétri Halldórssyni fyrir föstudaginn 30. desember næstkomandi. Netfang: [email protected] / S: 862-9322 eða 516-5038
www.rml.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts