Skeiðmót á Hellu í kvöld
Þriðjudagskvöldið 20. júní fer fram skeiðmót á Rangárbökkum kl. 20:00. Upphaf skeiðmótsins stýrist af því hvenær kynbótasýningum dagsins lýkur, ef kynbótasýning dregst á langinn þá hefst mótið um leið og sýningum lýkur. Keppt verður í 250m, 150m og 100m skeiði.
Búið er að opna fyrir skráningar í Sportfeng. Skráningarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 20. júní. Skráningargjald er 5.000 kr.
Árangur sem næst á mótinu gildir til þátttöku á Íslandsmóti í hestaíþróttum sé lágmörkum náð. Fyrirspurnir vegna skráninga sendist á [email protected] eða hafið samband við Sóley í s: 8677460.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts