Kynbótasýningar Skráning á síðsumarssýningar opnar 20. júlí

  • 16. júlí 2026
  • Tilkynning
Opnað verður á skráningar á síðsumarssýningar mánudaginn 20. júlí.

Að þessu sinni verður boðið upp á þrjár sýningar, eina á Hólum og tvær á Rangárbökkum. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar.

Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.

RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Hér að neðan má sjá hvenær eru síðustu skráningardagar.

 Dags.  Staður  Lokaskráningardagur
 10. – 13. ágúst  Rangárbakkar við Hellu  Þriðjudagur 4. ágúst
 17. – 21. ágúst  Rangárbakkar við Hellu  Þriðjudagur 4. ágúst
 17. – 21. ágúst  Hólar í Hjaltadal  Þriðjudagur 4. ágúst

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Nánari upplýsingar á vef RML.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link