Skráning er hafin á Íslandsmót barna og unglinga
Skráning er hafin á Íslandsmót barna og unglinga sem haldið verður á félagssvæði Geysis á Rangárbökkum dagana 12.-16. júlí. Skráningarfrestur verður til miðnættis föstudaginn 7. júlí. Undirbúningur er á fullu og gerum við ráð fyrir virkilega skemmtilegu móti með örlitlu breyttu sniði þar sem einnig verður boðið upp á gæðingakeppnisem gestagrein.
Að okkar mati er þetta einn af skemmtilegri viðburðum ársins og hlökkum við mikið til að taka á móti börnum, unglingum, aðstandendum þeirra og öðrum áhorfendum á félagssvæði okkar Geysis! Okkar stærsti bakhjarl er Hrossaræktarbúið Hjarðartún og þökkum við þeim kærlega fyrir að koma að þessu með okkur. Fylgist með á facebook-síðunni Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum 2023 – þar munu allar helstu upplýsingar birtast bæði í aðdraganda mótsins sem og á mótinu sjálfu. Fyrirspurnir vegna mótsins berist á [email protected] eða hjá Óla í síma 863-7130 og Sóleyju í síma 867-7460. Ef upp koma vandamál með skráningu þegar komið er í greiðlsugáttina endilega hafið samband ef vandamál koma upp eftir fyrstu tilraun
Keppt verður í eftirfarandi greinum: Barnaflokkur: Tölt T3 Fjórgangur V2 Slaktaumatölt T4 Gæðingalist Unglingaflokkur: Tölt T1 Fjórgangur V1 Fimmgangur F2 Slaktaumatölt T4 100 m skeið Gæðingaskeið Gæðingalist Gæðingakeppni – Gestagrein (ekki keppt um Íslandsmeistaratitil)Barnaflokkur Unglingaflokkur Gæðingatölt barna Gæðingatölt unglinga
Íslandsmótsnefnd skipa: Sóley Margeirsdóttir, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Ólafur Þórisson, Marta Gunnarsdóttir, Guðmundur Björgvinsson og Lárus Jóhann Guðmundsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts