Skráning hafin á Áhugamannamót Íslands og Áhugamannamót Spretts

  • 13. júlí 2023
  • Tilkynning
Áhugamannamót Íslands og Áhugamannamót Spretts. verður dagana 21.-23.júlí á félagssvæði Spretts.

Skráning er hafin á mótið en henni lýkur 15. júlí. Lágmarks skráning í hvern flokk er 5 keppendur og áskilur mótanefnd sér þann rétt að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki verður verður næg þátttaka. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Allar fyrirspurnir og afskráningar fara fram í gegnum netfangið [email protected]

Í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti kemur fram að undirbúningur er í fullum gangi og styrktaraðilar eru að týnasts í hús en veglegir vinningar verða í öllum greinum.

„Allir keppendur á Áhugamannamóti Íslands og Tommy Hilfilger og Áhugamannamóti Spretts og bílabankans fá 20% afslátt af öllum vörum í Ástund fram að móti og meðan á mótinu stendur. Eina sem þarf að gera er að sýna fram á skráningu í Kappa „appinu“

Play styrkir fljúgandi 100.m skeið í 2. flokki á Áhugamannamóti Spretts. Play mun gefa gjafabréf í þrjú efstu sætin. Nú er um að gera að skrá sig í fljúgandi skeið og fljúga á vit ævintýranna með Play,“ segir í tilkynningunni

Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni á síðastliðnum 5 árum. Keppt verður í 1.flokki. Hér keppa knapar með meiri keppnisreynslu. Keppt veðrur í: Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Gæðingaskeið PP1, Fjórgangur V5, Tölt T7 einnig verður keppt í Gæðingakeppni, A og B flokki.

Á Áhugamannamót Spretts og Bílabankans verður keppt í 2. flokki. Hér keppa knapar með minni keppnisreynslu . Keppt verður í : Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Fjórgangur V5, Tölt T7. Keppt verður í 3. flokki. Hér keppa knapar sem er byrjendur í keppni, fólk sem hefur td eingöngu keppt á vetrarleikum eða minni mótum. Keppt verður í : Tölt T7 og Fjórgangur V5

„Við bendum keppendum á nýjar reglur varðandi beislabúnað í keppni – sjá HÉR“ 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link