Skráning keppenda á Landsmót
Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni, sigurvegarar í barnaflokki á LM 2024. Mynd: Kolla Gr.
Landsmót hestamanna hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu varðandi skráning keppenda á Landsmót en síðasti skráningardagur er í dag.
Gæðingakeppni
Hvert hestamannafélag ber ábyrgð á skráningu sinna knapa og eins að senda upplýsingar um varahesta og knapa. Í sérstakri forkeppni hefur knapinn val upp á hvora höndina hann vill ríða og því mikilvægt að það sér rétt skráð.
Hvert hestamannafélag ber ábyrgð á því að skráningargjöld séu greidd og mikilvægt er að senda kvittun á skraning@landsmot.is svo skráningin sé gild. Skráningargjaldið er kr. 16.500 í alla gæðingaflokka.
Til viðbótar þeim hestum sem vinna sér þátttökurétt á Landsmóti í öllum flokkum í gegnum úrtökur hestamannafélaganna, fá efstu 6 hestar á stöðulistum sem ekki komust inn í gegnum úrtökur hjá sínum félögum, þátttökurétt á Landsmóti. Staða á stöðulistum er tekin að loknum úrtökum hestamannafélaganna sem haldnar eru fyrir kl. 23:59 þann 21. júní 2026. Haft verður samband við þá knapa sem komast inn í gegnum stöðulista.
Mikilvæg atriði í skráningarferlinu:
- Slóð á Skráningarkerfi Sportfengs: https://sportfengur.com/#/skraning/karfa
- Skrá keppendur: passa að félag knapa og hests sé rétt skráð og upp á hvora höndina knapi vill sýna.
- A-flokkur ungmenna Gæðingaflokkur 2 = sýningargreinin A-flokkur ungmenna.
- B-flokkur Gæðingaflokkur 2 = sýningargreinin B-flokkur áhugamanna.
- Fara yfir skráningar í körfu og passa að staðfesta þegar tilbúið.
- Millifæra rétta upphæð á uppgefinn bankareikning mótsins og senda kvittun á skraning@landsmot.is með pöntunarnúmeri.
- Skráningu varahesta þarf að senda á skraning@landsmot.is
Tölt, skeið & sýningargreinar
Þátttökuréttur í tölti og kappreiðum ræðst af stöðulistum löglegra móta sem lokið er fyrir 21. júní 2026. Hestar sem taka þátt í gæðingakeppni hafa einnig rétt á að taka þátt í íþróttagreinum mótsins séu þeir inni á stöðulistum.
Hver knapi ber ábyrgð á sinni skráningu út frá stöðulista sem birtur verður á heimasíðu LH, Landsmóts og öllum helstu vefmiðlum 22. júní. Knapar eru beðnir um að fylgjast vel með og bregðast skjótt við skráningu. Hver knapi ber ábyrgð á því að skráningargjöld séu greidd og mikilvægt er að senda kvittun á skraning@landsmot.is svo skráningin sé gild. Skráningargjaldið er kr. 16.500.
- 30 hæstu einkunnir í tölti T1
- 20 bestu tímarnir í 100m skeiði P2
- 18 bestu tímarnir í 150m skeiði P3
- 18 bestu tímarnir í 250m skeiði P1
- 16 ára aldurstakmark (árg. 2010) er í töltinu.
Sýningargreinar
Félögin skrá sína knapa eins og í öðrum gæðingaflokkum.
Ekki er tekið inn af stöðulistum.
Skráning keppenda á Landsmót
Tinni slær heimsmet
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Punktamót hjá Geysi
Þriðju skeiðleikar Skeiðfélagsins og Fóðurblöndunnar