Skeiðkappreiðar hjá Sörla
Keppt verður í 250 m. og 150 m. kappreiðaskeiði og 100 m. flugskeiði.
„Þetta eru fyrstu skeiðkappreiðar í Hafnarfirði um langt skeið þar sem nýir startbásar verða reyndir. Lögð hefur verið vinna í að hanna hraða skeiðbraut og öruggan kafla til niður hægingar. Sörli hlakkar til að taka á móti keppendum í skeiðgreinum í aðdraganda Íslandsmóts. Skeiðbrautin er í fínu standi og þetta verður kjörið tækifæri til að reyna hesta á skeiðvelli Íslandsmóts 2026,“ segir í tilkynningu frá félaginu og skeiðmannafélagi Hafnafrjarðar
Kappreiðar munu hefjast kl. 19:00 og hefjast á 250 m skeið, þar á eftir 150 m. skeið og loks 100 m. flugskeiði. Skráningargjald er 5.000 kr. á grein.
Skeiðkappreiðar hjá Sörla
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra
HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni
Karlatölt Kalda