Svíþjóð Stefnir á árangur með sænska liðið

  • 3. september 2026
  • Fréttir

Jökull kampakátur á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni.

Viðtal við Jökul Guðmundsson nýráðinn landsliðsþjálfara Svíþjóðar

Íslendingurinn og hestamaðurinn Jökull Guðmundsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Svía í hestaíþróttum, líkt og greint var frá á Eiðfaxa í síðustu viku. Jökull, sem hefur verið búsettur í Svíþjóð frá haustinu 1998, tekur við starfinu á spennandi tímapunkti þar sem skipulagning og undirbúningur fyrir Heimsmeistaramótið á næsta ári er þegar hafinn. Samhliða honum mun Sebastian Nordlander starfa sem aðstoðarlandsliðsþjálfari og munu þeir skipta verkefnunum á milli sín.

Magnús Benediktsson, starfsmaður Eiðfaxa, er staddur í Svíþjóð á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni sem nú fer fram og er í beinni á EiðfaxaTV, hann hitti á Jökul og tók hann tali.

„Það sem felst í starfinu er auðvitað að vera yfir landsliðinu og plana og græja fyrir næsta Heimsmeistaramót. Við ætlum að vera með hittinga með liðinu í vetur, en svo ætlum við líka að reyna að efla ungliðastarfið og ungmennin og hugsa svolítið um framtíðina,“ segir Jökull þegar hann er spurður út í helstu verkefnin fram undan. Hann bendir á að sérstakur þjálfari hafi ekki verið yfir ungmennaliðinu hingað til, en nú standi til að breyta því: „Svíþjóð er stórt og mikið land en hugsunin er að reyna að fá hitting með ungmennum og þjálfurum þeirra. Í ljósi stærðar landsins er gott að geta dreift verkefnum á milli mín og Sebastians.“

Sterkir kandídatar og stefnt á gull

Stemningin fyrir komandi tímabili er góð og Jökull segir menn þegar farna að leggja línurnar fyrir Heimsmeistaramótið: „Við erum með nokkra hesta sem eru mjög sterkir og góðir kandídatar, eins og við sáum á Norðurlandamótinu nú í sumar. HM er auðvitað annar vettvangur með fleiri og sterkari hestum frá öðrum löndum, en maður horfir mjög björtum augum fram á við. Ég held að sumir af þessum hestum sem eru búnir að vera að bæta sig upp á síðkastið haldi því áfram í vetur.“

Svíar eiga meðal annars titil að verja í samanlögðum fimmgangi sem Caspar Hegardt vann á síðasta HM, en Jökull leynir því ekki að hugurinn leiti einnig í aðra átt: „Svo langar okkur náttúrulega í eitt skeiðgull! Við eigum góða möguleika þar; við erum með alveg magnaðan skeiðhest hjá honum Guðmundi Einarssyni og nokkra aðra mjög góða.“ Þá eru góðar líkur á að fyrrum heimsmeistarinn Máni mæti til leiks á ný: „Eins og ég hef heyrt af Mána mun hann þjálfa og ríða Gljátoppi í vetur eftir að hafa sinnt hryssum í sumar. Hann stefnir auðvitað á að keppa á honum, þannig að ég held að við getum mætt með gott lið á næsta ári.“

Sænska landsliðið stóð sig mjög vel á Norðurlandamótinu í sumar og vann liðabikarinn. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Ræktunin dýr en framtíðin björt

Að mati Jökuls blómstrar almenn hestamennska í Svíþjóð: „Fólk sækir mjög mikið námskeið og það er mikill gróandi í tómstunda- og reiðhestamennsku. Keppnishópurinn er hins vegar svolítið sá sami, þó að það komi alltaf nokkrir nýir inn, sérstaklega unglingar. Nýliðunin mætti samt vera meiri í efstu flokkum í sportinu.“

Hvað ræktunina varðar bendir hann á að samdráttur hafi orðið líkt og víða annars staðar: „Ræktunin hefur dregist saman og folöldum fækkað. Ég held að það sé efnahagslegt; það er orðið mjög dýrt að eiga og rækta hest, sérstaklega ef fólk á ekki land sjálft eða getur ekki tamið sjálft. Það koma margir fínir reiðhestar en okkur vantar kannski fleiri topphesta og meiri gæði. Grunnurinn er alltaf góðar hryssur, en það mættu líka vera fleiri betri stóðhestar.“

Þrátt fyrir þetta horfir hann bjartsýnn fram á veginn: „Ég er þó bjartur og jákvæður. Þeir sem eru að rækta hérna eiga kaupendur að sínum hrossum, og svo er mjög mikið af efnilegum unglingum sem maður vonar bara að haldi áfram þegar þeir verða fullorðnir.“

Að lokum sendir nýi landsliðsþjálfarinn kveðjur heim: „Bara góðar kveðjur! Svo kem ég heim á næsta vori og heimsæki ykkur, og svo sjáumst við náttúrulega á Heimsmeistaramótinu — við skálum þar!“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link