Landsmót 2024 Stjörnurnar heimsóttar

  • 29. júní 2022
  • Uncategorized @is
Dagur ræktanda á sunnudeginum eftir Landsmót

Landsmót hestamanna verður haldið dagana 3. – 10. júlí. Dagskráin verður fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Formlegri dagskrá á Landsmótssvæðinu lýkur laugardagskvöldið 9. júlí og því er sunnudagurinn 10. júlí helgaður ræktendum íslenska hestsins.

Hrossaræktendur á Suðurlandi munu hafa opin hús og bjóða áhugasömum hestamönnum heim. Þannig gefst almenningi kostur á að kynna sér starfsemi, ræktun og ræktunarmarkmið hinna ýmsu ræktenda, auk þess sem ræktendur fá að hitta hestamenn og eiga gott spjall um hinar ýmsu hliðar hestamennskunnar.

Hver vill ekki hitta stjörnur Landsmóts á þeirra heimavelli og fá tækifæri til að hitta ræktendur í fremstu röð? Hér er hægt að sjá hvaða hrossaræktendur á Suðurlandi bjóða þig velkomin(n).

Horses of Iceland er um þessar mundir að bjóða nýja samstarfsaðila velkomna að verkefninu og er áhugasömum bent á að hafa samband við Jelenu Ohm verkefnastjóra verkefnisins á jelena@horsesoficeland.is.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar