Stórsýningin Ræktun
Frábærir ræktunarhópar, glæsihryssur, ung og efnileg hross. Afkvæmasýningar stóðhesta, efnilegir stóðhestar sem og magnaðir hátt dæmdir stóðhestar ásamt Landsmótsigurvegurum hafa boðað komu sína á Ræktun. Á sýningunni munu mæta hross sem ekki hafa sést í vetur og lagt verður upp með létta og skemmtilega sýningu.
Veitingar verða í boði eins og alltaf í Horseday höllinni fyrir gesti fyrir sýningu og í hléi. Húsið opnar klukkan 6 og sýning hefst klukkan 8.
Miðasala er hafin og hægt er að kaupa miða í Líflandi Selfossi og Reykjavík sem og Baldvin og Þorvald.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts