Svart-Skuggi að fara í hólf í Pulu
Svarti-Skuggi fer í hólf 29 júní heima í Pulu. Tekið verður á móti hryssum í hólfið helgina 27-28.júní. Fram að þeim tíma verðu hann í húsnotkun í Pulu.
„Svarti-Skuggi er úrvalsklárhestur með einstakt hreyfieðli. Foreldrar Svarta-Skugga eru Vegur frá Kagaðarhóli (a.e. 8.81) og Sóldís frá Pulu (a.e. 8.02). Hann hefur sjálfur hlotið 8,53 í aðaleinkunn. 8,60 fyrir sköpulag og 8,48 fyrir hæfileika (9.12 sem klárhestur). Þar af 10 fyrir fet, 9.5 fyrir hægt stökk, 9 fyrir tölt, brokk, vilja, fegurð í reið, bak og lend, samræmi, hófa og prúðleika.“
Umsjónaraðili biður þá sem eiga pantað pláss að hafa samband og staðfesta komu sína. Allar frekari upplýsingar má fá hjá Jóa í s. 867-6225 eða Theódóru í s. 869-8425.
Tinni slær heimsmet
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Punktamót hjá Geysi
Þriðju skeiðleikar Skeiðfélagsins og Fóðurblöndunnar