Sýnikennslu og námskeiði frestað vegna Covid19 veirunnar

  • 5. mars 2020
  • Fréttir

Fyrirhugaðri sýnikennslu og námskeiði sem fara átti fram í Eldhestum í Ölfusi hefur verið frestað.

Það stóð til að Jonathan Nunn járningarmeistari og fræðimaður héldi sýnikennslu um nýja byltingarkennda tækni frá Werkman Black í Eldhestum daganna 13 til 14 mars næstkomandi, auk járninganámskeiðs.

Vegna Covid19 veirunnar hafa þeir að námskeiðinu standa ákveðið að fresta því um óákveðin tíma. Í tilkynningu frá þeim segir m.a. að með þessu taki þeir samfélagslega ábyrgð um það að efna ekki til mannamóta að óþörfu þegar hægt er að fresta því vandkvæða.

Ný dagsetning verður auglýst þegar það hægist um og frekar upplýsingar liggja fyrir um Covid19 veiruna.

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link