Sýning Mette Mannseth og Skálmaldar frá Þúfum

  • 6. mars 2020
  • Sjónvarp Fréttir

Síðastliðið miðvikudagskvöld fór fram keppni í Meistaradeild KS í Léttishöllinni á Akureyri og var keppt í fjórgangi. Það var hún Mette Mannseth sem stóð uppi sem sigurvegari með einkunnina 7,67 í úrslitum.

Tindastóll TV hefur sýnt beint á vef Eiðfaxa frá öllum þremur keppniskvöldunum. Myndband af sýningu Mette í forkeppni má nálgast hér fyrir ofan en hún hlaut 7,43 í einkunn fyrir hana. Öll úrslit kvöldsins má nálgast með því að smella hér.

Þulir í útsendingu voru þeir Gunnlaugur Bjarnason og Sigurður Heiðar Birgisson

Nú er þremur keppnisgreinum af sex lokið og er lið Þúfna í forystu í liðakeppni. Næsta keppniskvöld er miðvikudaginn 18 mars þegar keppt er í fimmgangi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki

Staðan í liðakeppninni þegar mótið er hálfnað:

1. Þúfur 206 stig
2. Regulator Complete/Skáney 142 stig
3. Hrímnir 125,5 stig
4. Kerckhaert 118,5 stig
5. Syðra – Skörðugil / Weierholz 99,5 stig
6. Equinics 84 stig
7. Leiknisliðið 83,5 stig
8. Íbishóll 73 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link