Landsmót 2024 Þráinn hlýtur Orrabikarinn á Landsmóti

  • 24. júní 2024
  • Fréttir

Þráinn stóð efstur 6.vetra stóðhesta á Landsmóti í Reykjavík árið 2018 og stendur nú eftur 1.verðlauna stóðhesta fyrir komandi Landsmót

Átta stóðhestar gætu mætt með afkvæmahóp á Landsmót til 1.verðlauna fyrir afkvæmi

Nýtt kynbótamat birtist á worldfeng í morgun og því ljóst hvernig röðun stóðhesta sem hljóta afkvæmaverðlaun á Landsmóti verður.

Fyrir helgi birtist frétt á vef Eiðfaxa um þá stóðhesta sem náð höfðu afkvæmafjölda til þess að hljóta 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti. Nú er ljóst að átta stóðhestar hafa náð þeim frábæra árangri að eiga rétt á því að mæta með afkvæmahóp á Landsmót.

Efstur þeirra er Þráinn frá Flagbjarnarholti og verður hann því handhafi Orrabikarsins á komandi Landsmóti. Hann á 34 afkvæmi með fullnaðardóm og er með 134 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins.

Hér fyrir neðan má sjá röð þeirra stóðhesta sem hljóta 1.verðlaun fyrir afkvæmi raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins.

Nafn Aldur Fjöldi afkvæma A.e. Kynbótamats
Þráinn frá Flagbjarnarholti 12 34 134
Adrían frá Garðshorni 11 20 132
Ísak frá Þjórsárbakka 11 15 124
Dagfari frá Álfhólum 12 17 121
Snillingur frá Íbishóli 14 16 121
Hreyfill frá Vorsabæ 16 40 118
Lexus frá Vatnsleysu 15 15 116*
Ljósvaki frá Valstrýtu 14 23 114*

*Hljóta verðlaun á grundvelli aðaleinkunnar án skeiðs

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link