Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum TVEIR DAGAR Í MÓT

  • 24. janúar 2023
  • Tilkynning
Nú styttist í fyrsta mót Meistaradeildar Líflands 2023 en fjórgangur V1 er á dagskrá næstkomandi fimmtudag. Það verður spennandi að sjá okkar fremstu knapa og fá forsmekkinn af því sem í boði verður núna á ári heimsmeistaramóts.

 Íslensk Verðbréf ætla bjóða á fjórganginn og verður því frítt inn fyrir áhorfendur. Í tilefni þessarar fyrstu uppákomu í HorseDay höllinni verður HorseDay á staðnum og ætla að bjóða upp á léttar veitingar og sértilboð á áskriftum fyrir gesti kvöldsins.

Matseðill kvöldsins verður eftirfarandi:
• Ofnsteikt lambalæri með bernaise, kartöflum og grænmeti
• Tælensk kjötsúpa
• Samlokur frá Vor
• Pizzusneiðar frá Kaffi Krús

Við hvetjum alla til að panta mat fyrir fram á info@ingolfshvoll.is því ef það er gert er einnig hægt að láta taka frá sæti í stúku fyrir kvöldið.

Húsið og veitingasala opnar kl. 17:30, upphitunarhestur fer í braut 18:30 og hefst svo keppnin stundvíslega kl. 19:00.

​Sjáumst sem flest í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli á fimmtudagskvöldið annars bendum við fólki á áskrift hjá Alendis.

Stjórn Meistaradeildar Líflands

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar